Jæja 
Mín skellti sér á tónleika sl sunnudagskvöld. Fór áður út að borða með vinnufélugunum á Vox. Hittum/sáum þar fullt af fínu og frægu fólki og tel ég nokkuð víst að þessi staður sé upplagður fyrir þá sem sitja um þetta vinsæla lið, þó að mér hafi verið nokk sama. Eftir það röltum við niður í Laugardalshöll til að berja Noruh Jones augum og get ég ekki annað sagt en að hún sé í algjöru uppáhaldi eftir tónleikana. Þvílíkir tónlistarmenn og snillingar. Þau toppuðu hvert annað á fætur öðru! Uppgötvaði mér þó til mikillar undrunar eða þannig að Íslendingar eru algjörir dónar og margir hallærislega snobbaðir. Verð víst að skýra það ögn nánar... Tónleikarnir áttu sem sagt að byrja kl 8. Söngkonan var mætt fram á sviðið með gítarleikara og salurinn í orðsins fyllstu merkingu tómur!!! Stúkan var full fyrir aftan og hliðarvængirnir á sjálfu íþróttagólfinu fullskipaðir, en svæðið beint fyrir framan sviðið var mannlaust, frá sviði og aftur úr. Auðvitað voru þau sæti frátekin fyrir e-ð "mikilvægt" fólk sem var greinilega allt of fínt til að mæta í upphitunina. Svo sem allt í lagi, þau misstu bara af fyrsta klukkutímanum, sem var ekki síðri en afgangurinn af tónleikunum. Fyndnasta við þetta allt saman var að Norah skaut á þetta lið þegar liðið var á kvöldið.
Varð bara að koma þessu frá mér. Mynduð skilja mig ef þið hefðuð verið á svæðinu 
Síðan er skólinn kominn á fullt og alvaran byrjuð á fullu myndi ég segja. Förum að safna sjúklingum og leggst það allt saman vel í mig.
Vorum einmitt í dag að deyfa hvort annað og mín pínu stressuð því að ég hafði aldrei verið deyfð
. Þetta var svo víst bara minnsta mál í heimi, doldið spes, en ekkert vont svo sem. Tala ég eins og þetta sé voðalega merkilegt, en mér finnst það
Fyrsta skiptið sem ég er deyfð og það af vinkonu minni sem var að deyfa mig í fyrsta skipti
hehe...
Veriði samt alveg óhrædd lömbin mín þ.s nú erum við orðnar alveg pro í ýmsum gerðum deyfinga, sprauta og deyfilyfja
Nú, síðan eru allri að punga út börnum eða með þau á leiðinni og enn aðrir að flytja að heiman, en ég ætla aðeins að leyfa mér að vera mömmu og pabba barn örlítið í viðbót 
Þangað til næst 